Kepptu Í Overwatch
Íslandsmeistaramótið í Overwatch verður haldið í Hörpu þann 4. febrúar næstkomandi en skipuleggjendur mótsins eru Ljósleiðarinn og Tölvutek. Fyrri hluti mótsins er spilaður á netinu samkvæmt dagskrá mótsins og tvö bestu liðin keppa svo í beinni útsendingu í Hörpu.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegara mótsins sem Hringdu er meðal annars styrktaraðili að. Skráning á mótið er ókeypis og fer hún fram hérna: https://www.ljosleidarinn.is/islandsmeistaramotid-i-overwatch
Gangi þér vel!