Þráðlaust net fyrir stærri heimili
Netgear Orbi er netbúnaður sem hentar stærri heimilum þar sem þráðlaust net næst ekki í öll herbergi. Orbi samanstendur af einum netbeini (router) og aðgangspunkti sem tengjast saman þráðlaust og dreifa sambandi í allt að 400 fermetra húsnæði. Orbi hefur hlotið frábæra dóma frá m.a PCMAG, TrustedReviews, MacWorld, TechRadar, HotHardware og SmallNetBuilder en flestir gagnrýnendur eru sammála um að Netgear Orbi sé bestur í sínum flokki.
Þú færð Netgear Orbi á 69.900 kr. í verslun Hringdu. Innifalið í verðinu er uppsetning frá tæknimanni fyrir viðskiptavini Hringdu.