Horfðu frítt á sjónvarpið!
Fyrir nokkrum vikum fór í loftið OZ Live frá OZ en með því geturðu horft á sjónvarpið í tölvunni þinni, snjallsímanum (bæði Android og iOS) og á Apple TV -- alveg ókeypis. Þær stöðvar sem hægt er að nálgast eru RÚV, RÚV 2, Stöð 2 (í opinni dagskrá), Sjónvarp Símans (einungis á Apple TV), Hringbraut, N4, ÍNN og að sjálfsögðu hið ómissandi Alþingi.
Prófaðu OZ Live í tölvunni með því að smella hér eða leitaðu að OZ Live í App Store / Google Play Store. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu OZ.