Skólanetið + Bíópassi
Kæri viðskiptavinur!
Skólinn er byrjaður og þar sem þú ert með Skólanetið þurfum við staðfestingu á skólavist vegna skólaársins 2021-2022, fyrir 20. september. Skólanetið er okkar besti díll þar sem þú færð ótakmarkað net með 1000 Mbit hraða á 7.600 kr. / mán. Með áskriftinni fylgir einnig bíópassi í Laugarásbíó sem er í gildi út skólaárið (sep-maí) og veitir hann tvo frímiða í hverjum mánuði.
Þú sendir staðfestinguna á sala@hringdu.is og passar upp á að hún sýni fullt nafn eða kennitölu og skólaárið 2021-2022. Í kjölfarið færðu svo staðfestingu um að þú sért áfram með Skólanetið. Við erum frekar sveigjanleg með staðfestingarformið svo lengi sem skólaár og fullt nafn eða kennitala komi fram.
Ef við heyrum ekki frá þér fyrir 20. september verður áskriftinni breytt í ótakmarkað heimanet með 50 Mbit í hraða fyrir 8.000 kr. / mán.
---
SPURT & SVARAÐ
Ég er búin/n að skila inn staðfestingu, þarf ég að gera það aftur?
Ef þú hefur skilað inn staðfestingu fyrir skólaárið 2021-2022 þá hefur líklega eitthvað farið úrskeiðis hjá okkur, afsakaðu það! Okkur þætti vænt um ef þú gætir sent okkur staðfestinguna aftur svo allt sé rétt skráð.
Hvernig virkar bíópassinn og hvert sæki ég hann?
Bíópassinn er lítið plastkort á stærð við venjulegt greiðslukort og er hann afhentur í verslun Hringdu að Ármúla 27. Opnunartími er 10-17 alla virka daga.
-Bíópassinn gildir í Laugarásbíó frá 1. september 2021 til 31. maí 2022.
-Gildir á allar myndir nema íslenskar & 3D myndir.
-Passinn er með strikamerki sem er skannað í afgreiðslu Laugarásbíós.
-Þú færð tvo miða í hverjum mánuði. ATH: Ónotaðir miðar safnast ekki saman milli mánaða.
-Bíópassinn er í gildi á meðan þú ert með áskrift að Skólaneti.
Ég er ekki lengur í námi en vil hraðari tengingu, hvað er í boði?
Fyrir flesta duga 50 Mbit en þú getur valið um 500 Mbit (9.000 kr.) eða 1000 Mbit (10.000 kr.). Sendu okkur póst á sala@hringdu.is ef þú vilt gera breytingu á hraða.
Get ég verið með farsímaáskrift hjá ykkur?
Heldur betur og þú færð hana á sérkjörum! Ótakmörkuð símtöl og skilaboð í Evrópu (EES), ótakmörkuð símtöl frá Íslandi til 40 landa og 100 GB net í símann á 1.990 kr. Þú getur gengið frá pöntun hérna.