Verðlækkun á gagnamagni
Frá nóvember 2016 hafa tæplega 3000 manns fært sig í farsímaþjónustu hjá Hringdu en þá kynntum við í fyrsta skipti á Íslandi ótakmörkuð símtöl til Evrópu, USA og Kanada og Roam Like Home í Skandinavíu. Við viljum fagna þessum frábæru móttökum með enn einni verðlækkuninni sem tekur gildi strax í dag!
- 5 GB lækka um 500 kr. úr 1.990 kr. í 1.490 kr.
- 15 GB lækka um 1000 kr. úr 2.990 kr. í 1.990 kr.
- 25 GB er nýr netpakki fyrir farsíma á 2.990 kr.
Við tókum einnig saman nokkrar tölur sem sýna hvernig viðskiptavinir hafa nýtt sér farsímaþjónustu Hringdu til að lækka reikninginn sinn.
- Yfir 360.000 mínútur hafa verið hringdar til Evrópu, USA og Kanada fyrir 0 kr.
- Yfir 25.000 mínútur hafa verið hringdar í Skandinavíu fyrir 0 kr.
- Yfir 240 GB hafa verið notuð í Skandinavíu fyrir 0 kr.
Viltu skipta? Smelltu hér til að ganga frá pöntun.