SJÓNVARP
Ljósleiðari
Yfir ljósleiðarann er hægt að fá háskerpu sjónvarpsþjónustu frá Vodafone og tengja allt að sjö myndlykla á heimilinu.
Grunngjald er greitt mánaðarlega fyrir leigu á myndlyklum Vodafone. Innifalið í grunngjaldinu eru allar fríu stöðvarnar, efni í opinni dagskrá á Stöð 2 og Sjónvarpi Símans og Leigan. Með Leigunni fæst aðgangur að fjölbreyttu úrvali kvikmynda og sjónvarpsþátta sem hægt er að leigja allan sólarhringinn. Mánaðargjald háskerpu / 4K myndlykils er 2.190 kr.
Gjald vegna Sjónvarpsþjónustu er innheimt af Vodafone. Myndlykar eru afhentir í verslun Hringdu og verslunum Vodafone.
Ljósnet
Yfir ljósnet er hægt að fá háskerpu sjónvarpsþjónustu frá Símanum og tengja allt að fimm myndlykla. Grunngjald er greitt mánaðarlega fyrir leigu á myndlyklum Símans. Grunngjaldið veitir aðgang að öllum opnum innlendum stöðvum, SíminnBíó, Karaoke og íslenskum útvarpsstöðvum.
Mánaðargjald myndlykils er 2.200 kr. og styður hann háskerpu og 4K. Myndlyklar eru afhentir í verslunum Símans. Gjald vegna sjónvarpsþjónustu er innheimt af Símanum.