Núna þurfa öll símtæki að styðja VoLTE svo þau haldi símasambandi. Þú getur kannað hvort símtæki þitt hringi yfir VoLTE með símtali í 5376400.

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.

internet

Viltu 10x meiri hraða?

Í gær tilkynnti Míla áform sína um að bjóða upp á 10x meiri hraða yfir ljósleiðarakerfi sitt til heimila, eða allt að 10 Gbit í hraða. Frá 1. október mun allt höfuðborgarsvæðið eiga kost á 2.5 Gbit en innan þess munu ákveðin hverfi eiga kost á allt að 10 Gbit. Míla stefnir svo á að bjóða öllu höfuðborgarsvæðinu 10 Gbit frá apríl 2024. Síðar meir mun Míla kynna áform sín fyrir landsbyggðina.

Hringdu mun bjóða upp á 2.5 Gbit frá 1. október en stefnt verður á 5 Gbit og 10 Gbit síðar á árinu. Við erum byrjuð að taka við forpöntunum en hægt er að senda okkur póst á sala@hringdu.is með nafni, kennitölu og síma. Við höfum svo samband þegar nær dregur.



SPURT & SVARAÐ

Hvaða hraði verður í boði?
Þann 1. október munum við bjóða upp á 2.5 Gbit. Síðar á árinu stefnum við á að bjóða bæði 5 Gbit og 10 Gbit.

Hvaða hraða mun ég raunverulega fá?
Í hraðaprófum innanlands muntu fá fullan hraða á bæði 2.5 Gbit og 5 Gbit. Á 10 Gbit tengingu nærðu að hámarki 8.6 Gbit.

Ég er með router frá ykkur í dag, styður hann 2.5, 5 eða 10 Gbit?
Nei, núverandi leigubúnaður styður að hámarki 1 Gbit. Viðskiptavinum er frjálst að kaupa og nota sinn eigin búnað en seinna meir verðum við með búnað á leigu.

Styðja öll tækin á heimilinu mínu þennan hraða?
Líklega ekki. Nýjustu græjur (símar og fartölvur) búa yfirleitt yfir netkortum með stuðningi við WiFi 6 og WiFi 6E og geta þau náð hraða yfir 1 Gbit. Nýjar borðtölvur eru oft með stuðningi við 10 Gbit en gætu þurft uppfærslu á netkorti. 

Þarf ég að skipta út snúrum á heimilinu?
Til að fá hraða yfir 1 Gbit þarftu að nota CAT6 netkapal, flestir munu því þurfa að skipta út netköplum heima hjá sér, bæði þar sem er búið að draga í og frá router yfir í ljósleiðarabox.

Ég er með ljósleiðara frá Mílu, get ég notað núverandi ljósleiðarabox?
Nei, Míla þarf að uppfæra hjá þér boxið. En það kostar ekkert!

Hvað mun áskriftin kosta?
Verðið mun liggja fyrir 1. október.

Þarf ég meiri hraða?
Líklega ekki! Í dag bjóðum við 100 Mbit og 1 Gbit og við erum hreinskilin með að 100 Mbit duga flestum. Það er hins vegar fólk sem nýtur góðs af meiri hraða, t.d. þau sem vinna við margmiðlun og þurfa að sækja og senda mjög stór gögn eða tölvuleikjaraspilarar sem vilja sækja nýja leiki eða uppfærslur hraðar. Svo er aldrei að vita hvaða nýju tækifæri aukin bandvídd skapar!