Staðfesting fyrir Skólanetið

Kæri viðskiptavinur!

Skólinn er byrjaður og þar sem þú ert með Skólanetið þurfum við staðfestingu á skólavist vegna skólaársins 2022-2023, fyrir 15. september. Skólanetið er okkar besti díll þar sem þú færð ótakmarkað net með 1000 Mbit hraða á 7.500 kr. / mán. Með áskriftinni fylgir einnig bíópassi í Laugarásbíó sem er í gildi út skólaárið (sep-maí) og veitir hann tvo frímiða í hverjum mánuði.

Þú sendir staðfestinguna á sala@hringdu.is og passar upp á að hún sýni fullt nafn eða kennitölu og skólaárið 2022-2023. Í kjölfarið færðu svo staðfestingu um að þú sért áfram með Skólanetið. Við erum frekar sveigjanleg með staðfestingarformið svo lengi sem skólaár og fullt nafn eða kennitala komi fram.

Ef við heyrum ekki frá þér fyrir 15. september verður áskriftinni breytt í ótakmarkað heimanet með 100 Mbit í hraða fyrir 8.400 kr. / mán.

Bestu kveðjur,
Starfsfólk Hringdu

---

SPURT & SVARAÐ

Ég er búin/n að skila inn staðfestingu, þarf ég að gera það aftur?
Ef þú hefur skilað inn staðfestingu fyrir skólaárið 2022-2023 þá hefur líklega eitthvað farið úrskeiðis hjá okkur, afsakaðu það! Okkur þætti vænt um ef þú gætir sent okkur staðfestinguna aftur svo allt sé rétt skráð.

Hvernig virkar bíópassinn og hvert sæki ég hann?
Bíópassinn er lítið plastkort á stærð við venjulegt greiðslukort og er hann afhentur í verslun Hringdu að Ármúla 27. Opnunartími er 10-18 alla virka daga. 

-Bíópassinn gildir í Laugarásbíó frá 1. september 2022 til 31. maí 2023.
-Gildir á allar myndir nema íslenskar & 3D myndir.
-Passinn er með strikamerki sem er skannað í afgreiðslu Laugarásbíós.
-Þú færð tvo miða í hverjum mánuði. ATH: Ónotaðir miðar safnast ekki saman milli mánaða.
-Bíópassinn er í gildi á meðan þú ert með áskrift að Skólaneti.

Get ég notað Bíópassann sem ég fékk fyrir síðasta skólaár?
Já, við getum endurvirkjað hann! Þú þarft bara að senda okkur númer passans sem er neðst í hægra horninu.

Ég er ekki lengur í námi en vil hraðari tengingu, hvað er í boði?
Fyrir langflesta duga 100 Mbit en þú getur valið um 500 Mbit (9.400 kr.) eða 1000 Mbit (10.400 kr.). Svaraðu þessum pósti ef þú vilt gera breytingu á hraða.

Get ég verið með farsímaáskrift hjá ykkur?
Heldur betur og þú færð hana á sérkjörum! Ótakmörkuð símtöl og skilaboð í Evrópu (EES), ótakmörkuð símtöl frá Íslandi til 40 landa og 100 GB net í símann á 1.990 kr.  Þú getur gengið frá pöntun hérna.

Netspjall

Netspjallið er þægileg leið til að hafa samband við okkur.

LOKAÐ NÚNA

Netspjallið er opið:
Virka daga: 10:00 - 18:00

537 7000

Virka daga: 09:00 - 20:00
Laugardaga: 10:00 - 16:00
Sunnudaga: 12:00 - 16:00

Kíkja í heimsókn?

Verslun Hringdu, Ármúla 27. Verslunin er opin:
Virka daga: 10:00 - 18:00

Fyrirtækjaþjónusta

Símanúmer: 537 7070
Netfang: firma@hringdu.is

Hafa samband

Við viljum gjarnan aðstoða þig! Skildu eftir nafn og símanúmer og við höfum samband sem fyrst.