Vegna árshátíðar Hringdu er verslun lokuð 4. september og opin 12-18 mánudaginn 7. september. ATH: Ekki verður hægt að virkja rafræn skilríki í versluninni 7. september. Þjónustuver er opið 4. og 7. sep frá 10 til 18. Óbreyttur opnunartími um helgina.

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.

internet

2.4 Ghz eða 5 Ghz

Routerinn þinn sendir út tvö þráðlaus net þar sem annað er á 2.4 Ghz tíðni og hitt er á 5 Ghz. Í sinni einföldustu mynd er munurinn á þessum tíðnum drægni og hraði. Á 5 Ghz færðu meiri hraða en minni drægni á meðan 2.4 Ghz hefur meiri drægni en minni hraða. Að auki er 5 Ghz tíðnin ekki eins viðkvæm fyrir truflunum annara raftækja. Það fer allt eftir aðstæðum hvoru netinu er betra að tengjast en almenna reglan er að prófa fyrst 5 Ghz og sjá hvernig það virkar.