Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.

internet

Skólanetið

Hvernig virkar díllinn?
Ef þú ert nemi býðst þér hraðasta internetið með ótakmörkuðu gagnamagni á langbesta verðinu ásamt fríum bíópassa í Laugarásbíó. Til að virkja dílinn þarftu að framvísa staðfestingu á skólavist (t.d. afrit af greiddum skólagjöldum eða skólaskírteini) fyrir 2022-2023 og vera skráður greiðandi að netinu.

Hvernig virkar bíópassinn?
Bíópassinn er lítið plastkort  á stærð við venjulegt greiðslukort og er hann afhentur í verslun Hringdu að Ármúla 27. 

-Bíópassinn gildir í Laugarásbíó frá 1. september 2022 til 31. maí 2023.
-Gildir á allar myndir nema íslenskar & 3D myndir.
-Passinn er með strikamerki sem er skannað í afgreiðslu Laugarásbíós.
-Þú færð tvo miða í hverjum mánuði. ATH: Ónotaðir miðar safnast ekki saman milli mánaða.
-Bíópassinn er í gildi á meðan þú ert með áskrift að Skólaneti.

Skiptir máli í hvaða skóla ég er?
Alls ekki! Svo lengi sem þú ert námsmaður, 18 ára eða eldri, þá er díllinn í boði fyrir þig. Þetta gildir líka um fjarnám fyrir bæði innlenda og erlenda skóla.

Hvað er innifalið í netinu?
1000 Mbit tenging með ótakmörkuðu gagnamagni á 7.500 kr. Þú getur notað þinn eigin router eða leigt af okkur fyrir 990 kr. á mánuði.

Hvernig panta ég?
Þú getur gengið frá pöntun á hringdu.is, hringt í þjónustuverið (5377000), sent okkur póst á hringdu@hringdu.is eða spjallað við okkur á netspjallinu. 

Er þetta í boði fyrir alla nema?
Díllinn er í boði fyrir alla námsmenn sem eru 18 ára og eldri.

Held ég besta verðinu á netinu yfir sumarið?
Jebb! Í byrjun haustannar 2023 þarftu síðan að framvísa staðfestingu á skólavist fyrir 2023-2024.

Hvað borga ég fyrir netið þegar ég hef lokið náminu?
Það fer eftir pakkanum sem þú velur en á meðan þú ert í skóla færðu besta verðið á hröðustu tengingunni! 

Ég er nú þegar hjá ykkur, er þetta í boði fyrir mig?
Já, svo lengi sem þú ert nemi!

Er einhver binding?
Neibb. Ef þú segir upp tekur uppsögn gildi um næstu mánaðarmót og við vonumst til að fá þig aftur!