Vegna árshátíðar Hringdu er verslun lokuð 4. september og opin 12-18 mánudaginn 7. september. ATH: Ekki verður hægt að virkja rafræn skilríki í versluninni 7. september. Þjónustuver er opið 4. og 7. sep frá 10 til 18. Óbreyttur opnunartími um helgina.

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.

mobile

Farsími í Bandaríkjunum

Fyrr á árinu slökktu flest fjarskiptafyrirtæki í Bandaríkjunum á 2G og 3G farsímanetum sínum. Þetta hefur ollið vandræðum fyrir ferðalanga í Bandaríkjunum þar sem símtöl fara venjulega yfir 2G eða 3G. Símtöl í Bandaríkjunum fara nú flest yfir 4G með tækni sem kallast VoLTE. Flestir nýir snjallsímar styðja VoLTE og ef síminn þinn gerir það mælum við með að tengjast farsímaneti AT&T. Ef símtækið þitt styður ekki VoLTE verðurðu að tengjast við T-Mobile til að geta hringt.

Styður tækið mitt VoLTE?

Flestir snjallsímar framleiddir 2018 og síðar styðja VoLTE en hægt er að fá nánari upplýsingar á heimasíðu framleiðanda. Mikilvægt er að símtæki sé með nýjustu hugbúnaðaruppfærslu.

Dæmi um tæki sem styðja VoLTE:

-iPhone 8 og nýrri
-Samsung Galaxy S10 og nýrru
-Samsung A símtæki, þriggja ári og yngri

Þarf ég að kveikja á VoLTE í símanum?

iPhone símtæki með iOS 16 eða nýrra ættu sjálfkrafa að vera með kveikt á VoLTE. Sé ekki kveikt á því þarftu að fylgja þessum leiðbeiningum:

-Fara í Settings
-Smella á Mobile Data Options (ef það sést ekki þá smellirðu á símanúmerið þitt undir Primary)
-Smella á Voice & Data
-Kveikja á VoLTE


Fyrir Android

-Fara í Settings
-Smella á Network & Internet eða Connections
-Smella á Call. Gæti einnig heitið t.d. Cellular Network, Mobile Network eða Mobile Data
-Smella á Preferred Network Type eða Network Mode
-Velja 4G/LTE eða 5G og virkja VoLTE/HD Voice eða Enhanced Calling.

Hvernig skipti ég um símkerfi, t.d. ef ég vil skipta af T-Mobile yfir á AT&T?


iPhone

-Fara í Settings
-Smella á Mobile Data Options (ef það sést ekki þá smellirðu á símanúmerið þitt undir Primary)
-Smella á Network Selection
-Slökkva á Automatic
-Bíður eftir að símtækið hefur fundið símkerfin og velur það kerfi sem þú vilt tengjast

Samsung

-Fara í Settings
-Smelltu á Connections
-Smelltu á Networks/MobileNetworks/Cellular Networks
-Smelltu á Network Operators
-Veldu það símkerfi sem þú vilt tengjast við

Ég þarf ekki að hringja bara nota netið, hvaða símkerfi best fyrir mig?

Þú getur notað annað hvort AT&T eða T-Mobile. Almennt er AT&T með betra net en samband er mjög svæðisskipt í Bandaríkjunum þannig á sumum svæðum er T-Mobile sterkara.